- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Færeyingar tryggðu sér farseðilinn á EM – verða með á öðru mótinu í röð

Færeyska landsliðið tekur þátt í EM karla 2026. Ljósmynd/Hafliði Breiðfjörð
- Auglýsing -


Færeyingar taka þátt í Evrópumóti karla í handknattleik sem fram fer í Danmörku, Noregi og Svíþjóð í janúar á næsta ári. Færeyska landsliðið tryggði sér farseðilinn í kvöld með því að leggja landslið Kósovó í hörkuleik í Pristina, 25:23, eftir mikinn endasprett í hnífjöfnum leik.


Um verður að ræða annað Evrópumót karla í röð sem Færeyingar taka þátt í. Þeir slógu sannarlega í gegn með frammistöðu sinni á EM 2024 í Þýskalandi og voru hársbreidd frá sæti í milliriðlum.

Færeyska landsliðið er efst í 6. riðli undankeppninnar fyrir lokaumferðina á sunnudaginn. Færeyingar taka þá á móti úkraínska landsliðinu í nýju þjóðarhöllinni í Þórshöfn. Hvernig sem fer eru Færeyingar öruggir um annað af tveimur efstu sætum riðilsins en tvö efstu lið hvers riðils undankeppninnar eiga farseðil í lokakeppnina vísan.

Um sannkallaðan vinnusigur var að ræða hjá færeyska landsliðinu sem var einu marki undir í hálfleik, 13:12. Liðið lék afar vel í síðari hálfleik. Náði fljótlega frumkvæðinu og hélt því til enda þótt leikmenn landsliðs Kósovó legðu allt í sölurnar enda hefði sigur verið þeim dýrmætur.

Örvhenti hornamaðurinn Hákun West Av Teigum var frábær og skoraði 11 mörk í 14 skotum. Frændurnir Elias Ellefsen á Skipagøtu og Óli Mittún stýrðu sóknarleiknum að vanda og voru sífellt ógnandi. Annars má segja að Færeyingar hafi verið allir fyrir einn og einn fyrir alla.

Mörk Færeyja: Hákun West Av Teigum 11, Elias Ellefsen á Skipagøtu 4, Óli Mittún 4, Leivur Mortensen 4, Pætur Mikkjansson 1, Vilhelm Poulsen 1, Ísak Vedelsbøl 1.
– Valsmennirnir Bjarni í Selvindi og Allan Norðberg voru í færeyska liðinu en skoruðu ekki.

Føroyar stríddu seg aftur til EM – fara eftir 1. plássinum sunnudagin

Hér er finna myndir frá fögnuðu Færeyinga í Pristina í Kósovó:

BEINLEIÐIS: Føroyar skulu aftur til eitt EM-endaspæl

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -