- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Fastir liðir eins og venjulega

Carlos Ortega hefur verið þjálfari Barcelona frá 2021. Ljósmynd/EPA
- Auglýsing -


Spennan er alltaf jafnmikil í spænsku úrvalsdeildinni í handknattleik karla, eða hitt þó heldur. Evrópumeistarar Barcelona tryggðu sér formlega spænska meistaratitilinn í gær. Var það fimmtánda árið í röð sem Barcelona vinnur meistaratitilinn. Síðast vann annað lið en Barcelona titilinn vorið 2010, Ciudad Real. Það lognaðist út af nokkru síðar vegna auraleysis.


Barcelona lagði Helvetia Anaitasuna, 39:25, í gærkvöld og hefur 12 stig forskot á Granollers sem er í öðru sæti. Bidasoa Irún er í þriðja sæti með 34 stig. Barcelona á fjóra leiki eftir en Granollers sex.

Til þessa hefur Barcelona tapaði tveimur leikjum í deildinni en unnið 24. Stundum hefur liðið unnið alla leiki sína á leiktíðinni.

Alls hefur Barcelona unnið spænska meistaratitilinn í 31 skipti frá 1969, bikarkeppnina 28 sinnum, deildarbikarinn í 20 skipti og Meistarakeppnina í 24 sinnum.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -