Betur fór en talið var í fyrstu hjá handknattleiksmanni Selfoss-liðsins, Nökkva Dan Elliðasyni, þegar hann rakst á Darra Aronsson í fyrri hálfleik í viðureign Hauka og Selfoss í Olísdeild karla í Schenkerhöllinni á föstudagskvöld.
Við áreksturinn opnaðist sár á nefi Nökkva Dans svo að það blæddi hressilega úr og varð að gera nokkurt hlé á leiknum meðan honum var komið til aðstoðar auk þess sem þrífa þurfti gólfið á eftir.
Nökkvi Dan sagði við handbolta.is í gær að hann hafi sloppið við nefbrot þrátt fyrir höggið hafi verið nokkurt.
„Ég slapp óbrotinn en skellti mér í saumavélina upp á slysó. Ég fékk tennurnar á Darra óheppilega í gegnum nösina og þurfti aðeins að púsla því saman. Ekkert alvarlegra en smá minningarör,“ sagði Nökkvi Dan hress í bragði.
Ómögulegt er að segja um hvort Nökkvi verði klár í slaginn gegn Gróttu í Hleðsluhöllinni á Selfossi annað kvöld.