Stórleikur 20. umferðar í Olísdeid karla, á milli erfkifjendanna Hauka og FH, hefur verið færður yfir á næsta laugardagskvöld klukkan 20 af mánudagskvöldi eins og til stóð.
Haukar eru einu stigi frá að tryggja sér deildarmeistaratitilinn þannig að ef þeir ná í eitt eða tvö stig úr viðureinginni á laugardagskvöld þá fer deildarmeistarabikarinn á loft í leikslok. Leikið verður í Schenkerhöllinn á Ásvöllum, heimavelli Hauka og verður bein útsending frá viðureigninni á Stöð2sport.
Viðureign Hafnarfjarðarliðanna á laugardagskvöldið verður glæsilegur endapunktur á mikill handboltaveislu þann daginn. Fyrr um á laugardaginn, klukkan 16, mætast Grótta og Þór í Olísdeild karla i Hertzhöllinni í leik sem getur ráðið miklu í fallbaráttunni. Eftir þá viðureign mætast Stjarnan og Valur í TM-höllinni, einnig í Olísdeild karla klukkan 18.
Til viðbótar verða á laugardaginn tveir leikir í undanúrslitum umspilsins um sæti í Olísdeild kvenna á næstu leiktíð þegar ÍR og Grótta mætast annars vegar og Fjölnir-Fylkir og HK hinsvegar.