- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Ferðast milli landa – landsliðið er komið til Frederikshavn

MIkill farangur fylgir landsliðinu á ferðlaginu vegna heimsmeistaramótsins. Þurfti hver og einn út hópnum að leggjast á árar þegar tekið var á móti farangrinu í flugstöðinni í Álaborg upp úr hádeginu í dag. Mynd/Ívar
- Auglýsing -

Íslenska landsliðið í handknattleik kvenna kvaddi Stafangur í bítið í morgun. Flogið var til Kastrup og þaðan til Álaborgar. Við flugstöðina í Álaborg beið rúta eftir hópnum og flutti hann áfram til gististaðar í Frederikshavn, hafnarbæjar á norð austurhluta Jótlands.


Fyrsti leikur íslenska landsliðsins í keppninni um forsetabikarinn, 25. sætið, verður á fimmtudaginn klukkan 17 gegn næstu nágrönnum okkar frá Grænlandi. Sami leiktími verður einnig á laugardaginn gegn Paragvæ og á mánudaginn þegar Kínverjar verða að öllum líkindum andstæðingur íslenska landsliðsins.

Vitanlega er miðað við klukkuna heima á Íslandi.

Það skýrist betur í kvöld hvort Kínverjar eða Senegalar reka lestina í A-riðli. Þjóðirnar mætast í uppgjöri í Gautaborg. Kínverska liðið þarf á sigri að halda en Senegal nægir jafntefli.

Ekki æft í dag

Eftir komuna til Frederikshavn í dag fengu leikmenn frí a.m.k frá skipulögðum æfingum, að sögn Arnars Péturssonar landsliðsþjálfara. Leikmenn gátu ráðstafað tíma sínum að vild.

Til stendur að leikmenn landsliðsins fari saman út að borða í Frederikshavn í kvöld, fái tilbreytingu frá hótelmatnum sem vill verða leiðigjarn þótt staðgóður sé í flestum tilfellum.

Handbolti.is er kominn til Frederikshavn og fylgir íslenska landsliðinu til loka mótsins á miðvikudaginn í næstu viku þegar leikið verður um sæti í forsetabikarkeppninni.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -