- Auglýsing -
Flautað var til leiks í frönsku 1. deildinni í handknattleik í kvöld.
- Kristján Örn Kristjánsson, Donni, skoraði þrjú mörk fyrir PAUC þegar liðið tapaði í heimsókn sinni til Chartres, 34:27. PAUC var undir nær allan leikinn og m.a. var fjögurra marka munur í hálfleik, 18:14.
- Viktor Gísli Hallgrímsson kom ekkert inn á leikvöllinni þegar Nantes vann Chambéry, 30:21, á heimavelli. Nantes var átta mörkum yfir eftir fyrri hálfleik, 16:8.
- Grétar Ari Guðjónsson varði tvö skot, 20%, þann tíma sem hann stóð í marki Sélestat í naumu tapi fyrir Dunkerque á heimavelli, 29:28. Sélestat var tveimur mörkum undir í hálfleik, 13:11.
- Darri Aronsson er frá keppni vegna meiðsla. Hann var þar af leiðandi ekki með US Ivry í kvöld í tapleik á móti Cesson Rennes, 23:27. Ivry var marki yfir í hálfleik, 14:13.
- Auglýsing -