- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Framarar naga sig eflaust í handarbökin

- Auglýsing -

Framarar eiga vafalaust eftir að naga sig í handarbökin eftir að þeim gekk sigur í greipum í fyrstu viðureigninni við deildarmeistara Vals í undanúrslitum úrslitakeppni Olísdeildar kvenna í N1-höllinni á Hlíðarenda í kvöld. Fram lék afar vel í 45 mínútur og hafði tögl og hagldir og allt upp í fjögurra marka forskot. Valur náði að jafna metin fjórum mínútum fyrir leikslok og ná yfirhöndinni, 24:23, í fyrsta sinn 90 sekúndum fyrir leikslok.

Tveggja marka sigur Vals var staðreynd, 26:24. Fram var fjórum mörkum yfir í hálfleik, 16:12.


Næsta viðureign liðanna fer fram í Lambhagahöllinni á laugardaginn. Gert er ráð fyrir að flautað verði til leiks klukkan 15.30.

Reynslan skilaði Valsliðinu sigri að þessu sinni. Leikmenn héldu yfirvegun þótt margt gengi þeim í mót lengst af leiktímans gegn áköfu og skemmtilegu liði Fram sem vantaði e.t.v. trú á að það gæti unnið þegar nálgaðist leikslokin.

Mörk Vals: Lovísa Thompson 6, Elísa Elíasdóttir 4, Lilja Ágústsdóttir 4, Ásdís Þóra Ágústsdóttir 3/1, Arna Karitas Eiríksdóttir 2, Ásthildur Jóna Þórhallsdóttir 2, Guðrún Hekla Traustadóttir 2, Auður Ester Gestsdóttir 1, Mariam Eradze 1, Sara Lind Fróðadóttir 1.
Varin skot: Hafdís Renötudóttir 12/3, 33,3%.

Mörk Fram: Hulda Dagsdóttir 8/3, Harpa María Friðgeirsdóttir 5, Katrín Anna Ásmundsdóttir 4/1, Ásdís Guðmundsdóttir 3, Dagmar Guðrún Pálsdóttir 2, Valgerður Arnalds 2.
Varin skot: Ethel Gyða Bjarnasen 9/1, 28,1% – Arna Sif Jónsdóttir 0.

Tölfræði leiksins hjá HBStatz.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -