- Auglýsing -
Viðureign PAUC, Aix og Chambery í frönsku 1. deildinni í handknattleik á heimavelli PAUC hefur verið frestað vegna samkomutakmarkana í Frakklandi.
Kristján Örn Kristjánsson, Donni, leikur með PAUC. Hann gekk til liðs við PAUC í sumar og hefur leikið vel með liðinu í tveimur fyrstu leikjum þess í deildinni og m.a. skorað 13 mörk.
Samkvæmt upplýsingum á heimasíðu PAUC þá stendur til að leikurinn fari fram þriðjudaginn 20. okótber ef aðstæður leyfa.
- Auglýsing -