- Auglýsing -
Viðureign ÍBV og Fram í Olísdeild kvenna í handknattleik sem til stóð að færi fram í Vestmannaeyjum í kvöld hefur verið frestað vegna samgöngutruflana sökum veðurs.
ÍBV segir frá þessu á Facebook og lætur þess jafnframt getið að til standi að leikurinn hefjist klukkan 14 á morgun í Vestmannaeyjum.
Þar með fara allir leikir sjöundu umferðar Olísdeildar kvenna fram á morgun
Skógasel: ÍR – Stjarnan, kl. 13.30.
Vestmannaeyjar: ÍBV – Fram, kl. 14.
Ásvellir: Haukar – Valur, kl. 16.30.
KA-heimilið: KA/Þór – Afturelding, kl. 17.
Staðan í Olísdeildum.
- Auglýsing -