„Frábær varnarleikur, geggjuð liðsheild og frábær markvarsla,“ svaraði Díana Guðjónsdóttir annar þjálfara nýkrýndra bikarmeistara Hauka í handknattleik kvenna í samtali við handbolta.is í dag spurð hvað hefði fyrst og fremst fært Haukum sigur á Fram, 25:20, í úrslitaleik Poweradebikars kvenna á Ásvöllum.
„Þetta var frábær leikur hjá okkur, fyrst og fremst. Það var mikilvægt hjá okkur að ná aftur forskoti eftir að þær jöfnuðu, 5:5, snemma leiks,“ sagði Díana sem undirstrikaði að sigurinn í dag væri áfangi í uppbyggingu sem staðið hefur yfir hjá Haukum undanfarin ár.
„Það hefur verið ákveðin þróun hjá okkur undanfarin ár. Við erum alltaf að gera betur og viljum vera í úrslitaleikjum þótt það hafi ekki tekist. Okkur tókst að ná settu marki í dag. Reynslan er aukast og mér fannst við rólegar þegar mestu máli skipti,“ segi Díana Guðjónsdóttir annar þjálfara bikarmeistara Hauka.
Lengra viðtal við Díönu er að finna í myndskeiði hér fyrir ofan.
Átján ára bið Haukakvenna á enda – bikarmeistarar 2025
Vörnin small og ég er svo sátt
Náðum okkur aldrei almennilega í gang
Poweradebikarinn – fréttasíða.