- Auglýsing -
- Auglýsing -

Gísli, Ómar og Viktor meðal efstu í kjöri á Íþróttamanni ársins

Merki Samtaka íþróttafréttamanna.
- Auglýsing -

Þrír handknattleikskarlar eru á meðal ellefu efstu í kjöri Íþróttamanns ársins 2022 sem Samtök íþróttafréttamanna stendur fyrir 67. árið í röð. Auk þess eru þrír handknattleiksþjálfarar, Guðmundur Þórður Guðmundsson, Snorri Steinn Guðjónsson og Þórr Hergeirsson í hópi fjögurra efstu í kjöri á þjálfara ársins og tvö handknattleikslið eru á meðal þriggja efstu í kjöri á liði ársins, karlalandsliðið í handknattleik og Íslands- og bikarmeistarar Vals í karlaflokki.

Þrír landsliðsmenn

Handknattleiksmennirnir þrír sem eru í hópi þeirra efstu að þessu sinni eru í stafrófsröð: Gísli Þorgeir Kristjánsson leikmaður Þýskalandsmeistara Magdeburg,  Ómar Ingi Magnússon félagi Gísla Þorgeirs hjá þýsku meisturunum og Viktor Gísli Hallgrímsson markvörður Nantes í Frakklandi. Þremenningarnir eiga einnig sæti í íslenska landsliðinu. 

Ómar Ingi var kjörinn Íþróttamaður ársins 2021 og varð þá níundi handknattleiksmaðurinn til þess hreppa hnossið. 

Ellefu efstu að þessu sinni

Í ár gerðist það að tveir íþróttamenn urðu jafnir að stigum í 10. – 11. sæti. Reglur kjörsins segja aðeins til um hvað gera eigi séu tveir jafnir í 1. sæti. Reglurnar ná ekki yfir sætin fyrir neðan. Það eru því 11 íþróttamenn á topp listanum í ár. Það gerðist síðast árið 2000. Alls hefur það sjö sinnum gerst að topp 11 listi hefur verið birtur í stað topp 10.  Árin 1963, 1978, 1982, 1984, 1985, 1988 og 2000 var topp 11 listi, þ.e. tveir jafnir í 10. sæti.

Þrjú efstu í kjöri á liði ársins:
Íslenska karlalandsliðið í handbolta.
Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta.
Valur, meistaraflokkur karla í handbolta.

Þá gerðist það einnig að tveir þjálfarar urðu jafnir í þriðja sæti í kjörinu um þjálfara ársins að þessu sinni. Með sömu rökum er því birtur listi yfir fjóra efstu þjálfara kjörsins í ár.

Efstu fjórir í kjöri á þjálfara ársins:
Guðmundur Þ. Guðmundsson, þjálfari karlalandsliðsins í handbolta.
Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari karlaliðs Breiðabliks í fótbolta.
Snorri Steinn Guðjónsson, þjálfari karlaliðs Vals í handbolta.
Þórir Hergeirsson, þjálfari kvennalandsliðs Noregs í handbolta.

Ellefu efstu í kjöri íþróttamanns ársins 2022 eru í stafrófsröð:

Anton Sveinn McKee, sund.

Elvar Már Friðriksson, körfubolti.

Gísli Þorgeir Kristjánsson, handbolti.

Glódís Perla Viggósdóttir, fótbolti.

Guðmundur Ágúst Kristjánsson, golf.

Hilmar Örn Jónsson, frjálsíþróttir.

Kristín Þórhallsdóttir, kraftlyftingar.

Ómar Ingi Magnússon, handbolti.

Sandra Sigurðardóttir, fótbolti.

Tryggvi Snær Hlinason, körfubolti.

Viktor Gísli Hallgrímsson, handbolti.

Félagar í Samtökum íþróttafréttamanna eru nú 31 og tóku þeir allir þátt í kjörinu að þessu sinni. Kjöri Samtaka íþróttafréttamanna á íþróttamanni, liði og þjálfara ársins 2022 verður lýst í Hörpu 29. desember. Sýnt verður beint frá hófinu á RÚV klukkan 19.40.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -