- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Grétar Áki hættur þjálfun ÍR

- Auglýsing -

Grétar Áki Andersen er hættur þjálfun kvennaliðs ÍR í Olísdeildinni eftir eins árs veru í stól þjálfara. Leikmönnum ÍR var tilkynnt í gær að Grétar Áki væri hættur þjálfun liðsins og í morgun sendi handknattleiksdeild ÍR frá sér tilkynningu.


Grétar Áki tók við þjálfun ÍR fyrir ári þegar Sólveig Lára Kjærnested hætti eftir nokkurra ára starf. Grétar Áki var hægri hönd Sólveigar Láru síðasta árið. Hann þekkti þar af leiðandi vel leikmannahópinn er hann tók við sem aðalþjálfari fyrir ári.

Undir stjórn Grétars Áka endaði liðið í fjórða sæti Olísdeildar og komst í fyrstu umferð úrslitakeppninnar. Í úrslitakeppninni tapaði ÍR tvisvar fyrir Fram án þess að vinna á móti einum leik.

ÍR var í toppbaráttu framan af tímabilinu en fataðist aðeins flugið þegar komið var á nýtt ár.

Tvennum sögum fer um brotthvarfi Grétars Áka. Annarsvegar er að hann hafi sagt upp og hinsvegar er að stjórn handknattleiksdeildar ÍR hafi sagt honum upp störfum á sunnudaginn. Alltént er víst að Grétar Áki er hættur hjá ÍR.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -