- Auglýsing -
- Auglýsing -

Grill 66 karla: Víkingur vann á Selfoss – Fram sneri við taflinu – úrslit

Mynd/Egill Bjarni Friðjónsson
- Auglýsing -

Víkingar fara vel af stað á nýju ári í Grill66-deild karla. Þeir fóru austur fyrir fjall í kvöld og komu með tvö stig í farteskinu heim eftir að hafa sótt ungmennalið Selfoss heim í Sethöllina.

Heimamenn voru marki undir í hálfleik, 12:11. Þeim tókst hinsvegar ekki að veita Víkingi harða keppni þegar kom fram í síðari hálfleik. Víkingar náðu góðri forystu og héldu henni til loka eru þar með áfram í baráttu um annað sæti deildarinnar. Efsta sæti Grill 66-deildar virðist vera upptekið um þessar mundir, hvað svo sem gerist þegar á mótið líður.


Ótrúleg kaflaskipti voru í viðureign KA U og Fram U í KA-heimilinu. KA-menn virtust hafa öll ráð í hendi sér í upphafi síðari hálfleiks, sjö mörk yfir, 19:12. Leikmenn Fram voru á öðru máli. Þeir bitu í skjaldarrendur og unnu leikinn með þriggja marka mun, 31:28.


Selfoss U – Víkingur 25:31 (11:12).
Mörk Selfoss U.: Tryggvi Sigurberg Traustason 9, Haukur Páll Hallgrímsson 4, Gunnar Flosi Grétarsson 3, Sæþór Atlason 2, Sölvi Svavarsson 2, Hans Jörgen Ólafsson 2, Árni Ísleifsson 1, Vilhelm Freyr Steindórsson 1, Gunnar Kári Bragason 1.
Varin skot: Alexander Hrafnkelsson 9, Karl Jóhann Einarsson 3.
Mörk Víkings: Brynjar Jökull Guðmundsson 6, Andri Berg Haraldsson 4, Styrmir Sigurðarson 4, Marinó Gauti Gunnlaugsson 4, Agnar Ingi Rúnarsson 3, Igor Mrsulja 3, Jón Hjálmarsson 2, Guðjón Ágústsson 1, Jóhann Reynir Gunnlaugsson 1, Gunnar Valdimar Johnsen 1, Halldór Ingi Óskarsson 1, Logi Ágústsson 1.
Varin skot: Bjarki Garðarsson 11.


KA U – Fram U 28:31 (19:12).
Mörk KA U.: Skarphéðinn Ívar Einarsson 8, Kristján Gunnþórsson 6, Dagur Árni Heimisson 4, Aron Daði Bergþórsson 3, Magnús Dagur Jónatansson 3, Bruno Bernat 1, Hugi Elmarsson 1, Hilmar Bjarki Gíslason 1, Ernir Elí Ellertsson 1.
Varin skot: Bruno Bernat 12.
Mörk Fram U.: Reynir Þór Stefánsson 8, Kjartan Þór Júlíusson 6, Hrannar Máni Eyjólfsson 4, Arnþór Sævarsson 4, Eiður Rafn Valsson 3, Róbert Árni Guðmundsson 2, Tindur Ingólfsson 2, Daníel Stefán Reynisson 1, Arnór Máni Daðason 1.
Varin skot: Arnór Máni Daðason 8, Breki Hrafn Árnason 3.


Valur U – Haukar 30:27 (14:15).
Mörk Vals U.: Áki Hlynur Andrason 13, Breki Hrafn Valdimarsson 5, Tómas Sigurðarson 4, Erlendur Guðmundsson 3, Ísak Logi Einarsson 2, Þorgeir Arnarsson 2, Daníel Örn Guðmundsson 1.
Varin skot: Stefán Pétursson 14.
Mörk Hauka U.: Þorfinnur Máni Björnsson 8, Birkir Snær Steinsson 6, Ágúst Ingi Óskarsson 4, Gísli Rúnar Jóhannsson 4, Andri Fannar Elísson 3, Kristófer Máni Jónasson 1, Þórarinn Þórarinsson 1.
Varin skot: Viðar Logi Pétursson 7, Steinar Logi Jónatansson 3.


Staðan og næstu leikir í Grill 66-deildunum.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -