- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Grill 66-kvenna: Grótta hafði betur í uppgjöri við HK um efsta sætið

- Auglýsing -

Grótta hafði betur gegn HK í þriðja og síðasta uppgjöri liðanna á leiktíðinni í Grill 66-deild kvenna í handknattleik í kvöld, 31:27, í Hertz-höllinni á Seltjarnarnesi. Með sigrinum settist Grótta í efsta sæti deildarinnar með 30 stig eins og HK. Grótta hefur hins vegar unnið tvo af þremur leikjum liðanna á leiktíðinni og stendur þar af leiðandi betur að vígi þótt þau hafi safnað saman jafn mörgum stigum úr leikjum tímabilsins.

Vænlegri staða

Enn eru fjórar umferðir eftir en sannarlega varð staða Gróttu vænlegri eftir sigurinn í kvöld. Aðeins eitt lið fer beint upp í Olísdeild í vor en það sem hafnar í öðru sæti tekur þátt í umspili um keppnisrétt í Olísdeild á næstu leiktíð. Í umspilinu er ekki á vísan róið enda geta verið ljón í veginum.

Víkingur er í þriðja sæti Grill 66-deildar, 12 stigum á eftir Gróttu og HK. Víkingur gerði jafntefli við Fjölni í Fjölnishöllinni í kvöld, 25:25. Sara Kristín Pedersen skoraði jöfnunarmark Fjölnis þegar hálf önnur mínúta var til leiksloka.

Afturelding lyfti sér upp af botni Grill 66-deildar með góðum sigri á Val 2 í Myntkauphöllinni að Varmá, 30:26. Katrín Helga Davíðsdóttir átti enn einn stórleikinn fyrir Aftureldingu og skoraði 11 mörk.

Staðan og næstu leikir í Grill 66-deildum.

Grótta – HK 31:27 (18:16).

Mörk Gróttu: Ída Margrét Stefánsdóttir 9, Karlotta Kjerúlf Óskarsdóttir 9, Arndís Áslaug Grímsdóttir 3, Þóra María Sigurjónsdóttir 3, Elísabet Ása Einarsdóttir 2, Katrín Helga Sigurbergsdóttir 2, Edda Steingrímsdóttir 1, Katrín S. Scheving Thorsteinsson 1, Lilja Hrund Stefánsdóttir 1.
Varin skot: Andrea Gunnlaugsdóttir 19, Anna Karólína Ingadóttir 1.

Mörk HK: Tinna Ósk Gunnarsdóttir 10, Inga Fanney Hauksdóttir 4, Valgerður Ýr Þorsteinsdóttir 4, Katrín Hekla Magnúsdóttir 3, Leandra Náttsól Salvamoser 2, Sóley Ívarsdóttir 2, Auður Katrín Jónasdóttir 1, Þórhildur Braga Þórðardóttir 1.
Varin skot: Tanja Glóey Þrastardóttir 7, Danijela Sara B. Björnsdóttir 4.

Fjölnir – Víkingur 25:25 (11:11).

Mörk Fjölnis: Stefanía Ósk Engilbertsdóttir 12, Berglind Benediktsdóttir 5, Guðrún Maryam Rayadh 2, Sara Kristín Pedersen 2, Hildur Sóley Káradóttir 1, Karólína Ósk Arndal Sigurlaugardóttir 1, Rósa Kristín Kemp 1, Signý Harðardóttir 1.
Varin skot: Signý Pála Pálsdóttir 12.

Mörk Víkings: Auður Brynja Sölvadóttir 7, Valgerður Elín Snorradóttir 7, Andrea Ósk Þorkelsdóttir 3, Hafdís Shizuka Iura 3, Sunna Katrín Hreinsdóttir 2, Sara Björg Davíðsdóttir 1, Mattý Rós Birgisdóttir 1, Sara Björg Davíðsdóttir 1.
Varin skot: Klaudia Katarzyna Kondras 4.

Afturelding – Valur 2 30:26 (13:12).

Mörk Aftureldingar: Katrín Helga Davíðsdóttir 11, Susan Ines Barinas Gamboa 5, Kolbrún Arna Garðarsdóttir 5, Drífa Garðarsdóttir 3, Katrín Erla Kjartansdóttir 2, Þórdís Eva Elvarsdóttir 2, Arna Sól Orradóttir 1, Kamilla Aldís Ellertsdóttir 1.
Varin skot: Ingibjörg Gróa Guðmundsdóttir 11.

Mörk Vals 2: Guðrún Ásta Magnúsdóttir 6, Eva Steinsen Jónsdóttir 4, Laufey Helga Óskarsdóttir 4, Ágústa Rún Jónasdóttir 3, Katla Margrét Óskarsdóttir 3, Sara Lind Fróðadóttir 2, Þórdís Gunnarsdóttir 2, Erla Sif Leósdóttir 1, Sara Sigurvinsdóttir 1.
Varin skot: Elísabet Millý Elíasardóttir 7, Iðunn Erla Mýrdal Helgadóttir 1.

Staðan og næstu leikir í Grill 66-deildum.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -