- Auglýsing -
- Auglýsing -

Grill 66kvenna: FH fór upp að hlið Selfoss – úrslit og staðan

Ena Car var skoraði 11 mörk fyrir FH í kvöld. Mynd/J.L.Long
- Auglýsing -

FH komst upp að hlið Selfoss í efsta sæti Grill 66-deildar kvenna í handknattleik með því að leggja Víkinga í hörkuleik í Kaplakrika, 30:26, eftir að hafa verið þremur mörkum yfir að loknum fyrri hálfleik, 20:17.


FH-ingar hafa þar með unnið þrjá fyrstu leiki sína í deildinni eins og Selfoss sem síðast vann Gróttu í uppgjöri tveggja af öflugri liðanna á föstudagskvöld í Hertzhöllinni, 32:26.

Víkingur vann tvo fyrstu leiki sína í deildinni á síðustu vikum og er í þriðja til fjórða sæti með fjögur stig eins og Grótta og ungmennalið Vals. Síðastnefnda liðið á ekki möguleika að færast upp í Olísdeild.

Mikill hraði – mörg mörk

Mikill hraði var í leiknum í fyrri hálfleik og jafnræði með liðunum. Þau skiptust lengst af á að vera einu til tveimur mörkum yfir. Eftir 37 mörk í fyrri hálfleik þá svall leikmönnum móðurinn í síðari hálfleik um leið og FH-ingar tóku afgerandi forystu. Tíu mínútum fyrir leikslok var forskot FH sjö mörk, 29:22. Þrátt fyrir að Hafnfirðingar slökuðu aðeins á sóknarklónni á síðustu mínútum virtist sigurinn aldrei vera í hættu.

Stórsigur HK

Tveir leikir voru til viðbótar í Grill 66-deild kvenna fyrr í dag. HK-ingar tóku ungmennalið Hauka í kennslustund á Ásvöllum, 32:14. Krækti HK þar með í sinn fyrsta vinning í deildinni.
Ungmennlið Vals sótti tvö stig í heimsókn til ungmennaliðs Fram í Úlfarsárdal, 26:23.

Staðan og næstu leikir í Grill 66-deildum.


Úrslit og markaskor í leikjum dagsins:

FH – Víkingur 30:26 (20:17).
Mörk FH: Ena Car 9, Karen Hrund Logadóttir 7, Lara Zidek 7, Emilía Ósk Steinarsdóttir 3, Telma Medos 2, Dagný Þorgilsdóttir 1, Gyða Kristín Ásgeirsdóttir 1.
Varin skot: Hrafnhildur Anna Þorleifsdóttir 12.
Mörk Víkings: Ída Bjarklind Magnúsdóttir 10, Auður Brynja Sölvadóttir 6, Áróra Eir Pálsdóttir 3, Valgerður Elín Snorradóttir 3, Díana Ágústsdóttir 2, Sunna Katrín Hreinsdóttir 1, Sunna Thoroddsen Friðriksdóttir 1.
Varin skot: Tara Sól Úranusdóttir 7.

Haukar U – HK 14:32 (7:15).
Mörk Hauka U.: Ester Amíra Ægisdóttir 4, Brynja Eik Steinsdóttir 3, Bryndís Pálmadóttir 3, Hildur Sóley Káradóttir 2, Rósa Kristín Kemp 1, Þóra Hrafnkelsdóttir 1.
Varin skot: Margrét Einarsdóttir 11, Erla Rut Viktorsdóttir 1.
Mörk HK: Inga Fanney Hauksdóttir 8, Aníta Eik Jónsdóttir 7, Margrét Guðmundsdóttir 5, Stella Jónsdóttir 3, Amelía Laufey Gunnarsdóttir 3, Katrín Hekla Magnúsdóttir 2, Elfa Björg Óskarsdóttir 2, Anna Valdís Garðarsdóttir 1, Aníta Björk Bárðardóttir 1.
Varin skot: Tanja Glóey Þrastardóttir 14.

Fram U – Valur U 23:26 (15:13).
Mörk Fram U.: Dagmar Guðrún Pálsdóttir 9, Sóldís Rós Ragnarsdóttir 5, Valgerður Arnalds 4, Elín Ása Bjarnadóttir 3, Sara Rún Gísladóttir 1, Silja Jensdóttir 1.
Varin skot: Ingunn María Brynjarsdóttir 13.
Mörk Vals U.: Arna Karitas Eiríksdóttir 8, Ásrún Inga Arnarsdóttir 8, Ágústa Rún Jónasdóttir 5, Guðrún Hekla Traustadóttir 3, Ásthildur Jóna Þórhallsdóttir 1, Kristbjörg Erlingsdóttir 1.
Varin skot: Arna Sif Jónsdóttir 12.

Staðan og næstu leikir í Grill 66-deildum.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -