- Auglýsing -
- Auglýsing -

Grill66 karla: Ungmenni Selfoss skelltu Fjölni – úrslit dagsins og staðan

Mynd/Hafliði Breiðfjörð
- Auglýsing -

Ungmennalið KA tapaði sínum fyrsta leik í Grill66-deildini í handknattleik karla í dag þegar leikmenn liðsins máttu játa sig sigraða í heimsókn til ungmennaliðs Vals, 25:23. Valsliðið átti endasprettinn en KA-liðið var lengi vel með frumkvæðið. KA var tveimur mörkum yfir í hálfleik, 12:15. Ungmennalið Vals og HK eru í tveimur efstu sætum deildarinnar og eru einu taplausu liðin þegar fjórðu umferð er svo gott sem lokið.

Selfoss fór með stigin frá Dalhúsum

Ungmennlið Selfoss setti strik í ætlan Fjölnismanna að vera í toppbaráttu. Selfoss vann með einu marki í Dalhúsum í dag í leik hinna glötuðu varna, 44:43. Fjölnir var sterkari lengst af fyrri hálfleiks en staðan var jöfn að honum loknum, 19:19. Selfossliðið tók öll völd á leikvellinum í síðari hálfleik og var með fimm marka forskot á kafla. Fjölnismenn reyndu hvað þeir gátu undir lokin en eins og sagt er á stundum, allt kom fyrir ekki.

Fyrsti sigur Framara

Ungmennalið Fram vann sinn fyrsta leik í deildinni á leiktíðinni þegar því tókst að leggja ungmenni Hauka, 31:29, í Úlfarsárdal. Arnór Máni Daðason fór á kostum í marki Framliðsins og varði 22 skot.


Valur U – KA U 25:23 (12:15).
Mörk Vals U.: Áki Hlynur Andrason 6, Breki Hrafn Valdimarsson 4, Tómas Sigurðarson 4, Erlendur Guðmundsson 3, Ísak Logi Einarsson 3, Viktor Andri Jónsson 2, Þorgeir Sólveigar Gunnarsson 1, Andri Finnsson 1, Stefán Pétursson 1.
Varin skot: Stefán Pétursson 13.
Mörk KA U.: Logi Gautason 6, Dagur Árni Heimisson 5, Arnór Ísak Haddsson 4, Kristján Gunnþórsson 3, Jens Bragi Bergþórsson 2, Aron Daði Bergþórsson 2, Jónsteinn Helgi Þórsson 1.
Varin skot: Bruno Bernat 13.

Fjölnir – Selfoss U 43:44 (19:19).
Mörk Fjölnis: Björgvin Páll Rúnarsson 7, Goði Ingvar Sveinsson 6, Óðinn Freyr Heiðmarsson 6, Viktor Berg Grétarsson 5, Elvar Þór Ólafsson 5, Þorleifur Rafn Aðalsteinsson 5, Alex Máni Oddnýjarson 5, Jón Ásgeir Eyjólfsson 3, Benedikt Marinó Herdísarson 1.
Varin skot: Andri Hansen 10, Bergur Bjartmarsson 6.
Mörk Selfoss U.: Hans Jörgen Ólafsson 11, Sæþór Atlason 9, Gunnar Kári Bragason 7, Hannes Höskuldsson 7, Sölvi Svavarsson 3, Jason Dagur Þórisson 2, Vilhelm Freyr Steindórsson 2, Gunnar Flosi Grétarsson 2, Valdimar Örn Ingvarsson 1.
Varin skot: Jón Þórarinn Þorsteinsson 13, Karl Jóhann Einarsson 2.


Fram U – Haukar U 31:29 (13:15).
Mörk Fram U.: Reynir Þór Stefánsson 12, Róbert Árni Guðmundsson 5, Stefán Orri Arnalds 4, Kristófer Andri Daðason 3, Daníel Stefán Reynisson 2, Max Emil Stenlund 2, Kjartan Þór Júlíusson 1, Hrannar Máni Eyjólfsson 1, Eiður Rafn Valsson 1.
Varin skot: Arnór Máni Daðason 22.
Mörk Hauka U.: Ágúst Ingi Óskarsson 9, Birkir Snær Steinsson 7, Össur Haraldsson 5, Andri Fannar Elísson 5, Þórarinn Þórarinsson 2, Lárus Þór Björgvinsson 1.
Varin skot: Magnús Gunnar Karlsson 14, Steinar Logi Jónatansson 1.

Staðan í Grill66-deild karla.

Einn leikur var í Grill66-deild karla í gærkvöld.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -