- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Grótta fór með sigur út býtum í fyrsta úrslitaleiknum

- Auglýsing -

Grótta hrósaði sigri í fyrsta úrslitaleiknum við Stjörnuna í úrslitum umspils Olísdeildar kvenna í handknattleik í kvöld í Hekluhöllinni í Garðabæ. Lokatölur voru 23: 21. Elísabet Ása Einarsdóttir innsiglaði sigur Gróttu átta sekúndum fyrir leikslok. Næsta viðureign liðanna fer fram í Hertzhöllinni á Seltjarnarnesi á sunnudaginn og hefst klukkan 16. Vinna þarf þrjár viðureignir til þess að standa uppi sem sigurvegari umspilsins og eiga þar með víst sæti í Olísdeild kvenna á næstu leiktíð.


Grótta var með yfirhöndina í leiknum frá upphafi til enda. Þegar fyrri hálfleikur var að baki hafði Grótta þriggja marka forskot, 12:9. Stjörnuliðið sótti í síðari hálfleik en lánaðist aldrei að komast yfir.

Andrea Gunnlaugsdóttir markvörður átti stórleik í marki Gróttu. Hún varði 17 skot, 46%, og nýtti reynslu vel. Ída Margrét Stefánsdóttir bar upp sóknarleikinn.

Mörk Stjörnunnar: Vigdís Arna Hjartardóttir 5, Eva Björk Davíðsdóttir 4, Aníta Björk Valgeirsdóttir 3/3, Hanna Guðrún Hauksdóttir 2, Inga Maria Roysdottir 2, Natasja Hammer 2, Bryndís Hulda Ómarsdóttir 1, Guðmunda Auður Guðjónsdóttir 1, Þóra Hrafnkelsdóttir 1.
Varin skot: Hrafnhildur Anna Þorleifsdóttir 10, 32,3% – Margrét Einarsdóttir 4/3, 66,7%.

Mörk Gróttu: Ída Margrét Stefánsdóttir 10/4, Elísabet Ása Einarsdóttir 4, Katrín S. Scheving Thorsteinsson 4/1, Guðrún Þorláksdóttir 3, Katrín Helga Sigurbergsdóttir 1, Þóra María Sigurjónsdóttir 1.
Varin skot: Andrea Gunnlaugsdóttir 17, 45,9% – Anna Karólína Ingadóttir 2, 66,7%.

Tölfræði leiksins hjá HBStatz.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -