Guðmunda Auður Guðjónsdóttir hefur gert samning við handknattleiksdeild Hauka um að leika með liðinu næstu árin. Guðmunda Auður, sem verður 19 ára í júlí, kemur til liðs við Hauka frá Stjörnunni þar sem hún hefur leikið síðustu tvö tímabil.
Guðmunda Auður, sem er línumaður, er uppalin í HK og hefur leikið stórt hlutverk með Stjörnunni í Olís deildinni þrátt fyrir ungan aldur. Í vetur var hún með 36 mörk í 21 leik ásamt því að láta til sín taka í vörninni þar sem hún var með 113 löglegar stöðvanir. Guðmunda Auður hefur átt fast sæti í yngri landsliðum Íslands en í sumar mun hún fara með landsliði Íslands til Kína til að taka þátt á heimsmeistaramóti 20 ára liða.
Fetar í fótspor míður sinnar
Þess má geta að Guðmunda Auður fetar nú í fótspor móður sinnar Auðar Hermannsdóttur lék með Haukum á árunum 1995 til 2001. Hún varð Íslandsmeistari með liðinu í þrígang ásamt því að verða bikarmeistari tvisvar sinnum og deildarmeistari í eitt skipti.
„Það er alltaf ánægjulegt þegar ungar og efnilegar handknattleiksstelpur skrifa undir samninga við félagið og mikilvægt fyrir framtíð félagsins en þetta er liður í því að halda áfram að keppast um alla þá titla sem í boði eru,“ segir í tilkynningu frá Haukum.



