Svo skemmtilega vill til að Roland Eradze markavarðaþjálfari karlalandsliðsins og Guðni Jónsson liðsstjóri landsliðsins eiga báðir 54 ára afmæli í dag, 7. maí. Afmælisbræðurnir halda upp á daginn með landsliðinu í Sarajevó í Bosníu þar sem leikið verður við bosníska landsliðið í undankeppni EM klukkan 18 í kvöld.
Roland og Guðni slógu ekki slöku við á afmælisdaginn og létu til sín taka á æfingu landsliðsins í snemma í morgun í Mirza Delibašić Hall í Sarajevó.
Þeir vænta þess væntanlega að fá íslenskan sigur í afmælisgjöf en sigur færir liðinu örugglega efsta sæti 3. riðils undankeppninnar. Eftir leikinn munu þeir væntanlega gæða sér á mat af hlaðborði hótelsins sem landsliðið býr á í höfuðborg Sarajevó.
Leikurinn í Mirza Delibašić Hall hefst klukkan 18 og verður sendur út á RÚV2 auk þess sem handbolti.is verður með sína sígildu textalýsingu.
Fleiri myndir frá æfingunni:








A-landslið karla – fréttasíða.
Undankeppni EM karla “26: úrslit leikja og staðan