- Auglýsing -
- Auglýsing -

Györ krækti í síðasta sætið í átta liða úrslitum – þýsku meistararnir eru úr leik

Anett Kisfaludy leikmaður FTC fagnar með samherja í sigurleiknum við Odense í Óðinsvéum í gær. Mynd/EPA
- Auglýsing -

Ungverska meistaraliðið Györ krækti í fjórða og síðasta sætið í átta liða úrslitum Meistaradeildar kvenna í handknattleik þegar lokaumferð riðlakeppninnar fór fram um helgina. Györ vann Esbjerg, 29:28, í Ungverjalandi á laugardaginn í uppgjöri liðanna um annað sæti riðilsins. Leikurinn var hnífjafn frá upphafi til enda.


Evrópumeistarar tveggja síðustu ára, Vipers Kristiandand, CSM Búkaresti, Metz og Györ sitja yfir í fyrstu umferð útsláttarkeppninnar og mæta til leiks í átta liða úrslitum.


Í fyrstu umferð útsláttarkeppninnar mætast:
Brest Bretagne – Esbjerg.
Krim – Rapid Búkaresti.
Storhamar – Odense.
Buducnost – FTC.


Fyrri umferðin fer fram laugardaginn 18. mars. Síðari leikirnir verða viku síðar. Samanlagður sigurvegari tekur sæti í átta liða úrslitum ásamt Vipers Kristiansand, CSM Búkaresti, Metz og Györ.

Henny Reistad skorar fyrir Esbjerg í leiknum við Györ á laugardaginn. Reistad og samherjar urðu að sætta sig við naumt tap í Ungverjalandi, 29:28. Mynd/EPA

Sitja eftir með sárt ennið


Leikmenn þýska meistaraliðsins Bietigheim sitja eftir með sárt ennið. Þeir komast ekki í fyrstu umferð útsláttarkeppnina þrátt fyrir stórsigur á Banik Most, 47:25. Á sama tíma vann Krim frekar óvæntan sigur á rúmensku meisturunum, CSM Búkaresti, 28:26, í Ljubljana.


Brest, Krim og Bietigheim enduðu jöfn með 12 stig hvert í fimmta til sjöunda sæti A-riðils keppninnar. Þegar litið er til innbyrðisúrslita í leikjum liðanna þriggja stendur Bietigheim lakast að vígi og lendir þar með í sjöunda sæti. Tvö neðstu liðin í hvorum riðli eru úr leik.

Úrslit leikja helgarinnar og lokastaðan í riðlunum

A-riðill:
Brest – Vipers 29:36.
Bietigheim – Banik Most 47:25.
Krim – CSM Búkaresti 28:26.
Odense – FTC 25:28.

Vipers Kr.141112456:37323
CSM Búkaresti141022439:38622
Odense14806398:37316
FTC14716407:37415
Krim14608399:40512
Brest Bretagne14527377:37812
Bietigheim14527432:38812
Banik Most140014347:5780

B-riðill:
Györ – Esbjerg 29:28.
Rapid Búkaresti – Lokomotiv Zagreb 27:22.
Storhamar – Metz 24:26.
Buducnost – Kastamonu 10:0.*

Metz141211429:35225
Györ141103444:34722
Esbjerg141004455:36720
Rapid Búk.14923441:40420
Buducnost14617346:36613
Storhamar144010377:4068
Kastamonu141112341:4523
Lokomotiv140113276:4151

*Leikurinn fór ekki fram vegna jarðskjálftanna í Tyrklandi. Kastamonu er tyrkneskt félag.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -