- Auglýsing -
Handknattleiksmarkvörðurinn Hafdís Renötudóttir hefur ákveðið að leika með Fram á næsta keppnistímabili. Hún hefur gert þriggja ára samning við Safamýrarliðið sem hún kvaddi á haustmánuðum og gekk til liðs við Lugi. Hjá Lugi lenti Hafdís fljótlega í erfiðum meiðslum svo minna varð úr dvöl hennar í Lundi en efni stóðu til um.
Hafdís hefur unnið hörðum höndum að því að ná sér af meiðslunum og verður klár í slaginn í haust. Hafdís lék um árabil með íslenska landsliðinu.
- Auglýsing -