- Auglýsing -
Annar leikdagur á Hafnarfjarðarmótinu í handknattleik karla verður í dag. Eins og í fyrradag verður leikið í Kaplakrika. FH-ingar ríða á vaðið þegar þeir mæta Stjörnunni í leik sem hefst klukkan 18. Tveimur stundum síðar hefst viðureign Hauka og Aftureldingar.
Haukar unnu Stjörnuna, 34:29, á þriðjudaginn og FH lagði Aftureldingu, 31:27. Lokaumferð mótsins verður leikin á laugardaginn.
Áhorfendur eru velkomnir á leikina í Kaplakrika þar sem ítrustu sóttvarna verður gætt. Nægt pláss er í húsinu. Einnig verður hægt að fylgjast með leikjunum í beinni útsendingu á youtuberás FH – FH handbolti í beinni.

- Valur – H.C. Dunarea Braila, staðan?
- Valur – H.C. Dunarea Braila í streymi kl. 17
- Handkastið: Leita að aðstoðarþjálfara – flatt og dapurt
- Sigur hjá Aroni og Degi – Erlingur tapaði fyrsta leiknum
- Meistarar Vals treysta á alvöru stuðning í stórverkefni dagsins
- Auglýsing -