- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Hákon Garri hefur skrifað nafn sitt undir samning

Hákon Garri Gestsson handknattleiksmaður á Selfossi. Ljósmynd/UMS Selfoss
- Auglýsing -

Hákon Garri Gestsson hefur skrifað undir samning við handknattleiksdeild Umf. Selfoss.

„Hákon Garri er vinstri skytta frá Selfossi. Í vor fékk Hákon verðlaun fyrir afrek ársins í handknattleiksakademíu Selfoss, en á yngsta ári varð hann markahæsti leikmaður 3. flokks á síðasta tímabili. Þá varð hann fastamaður í U-liði Selfoss síðari hluta tímabilsins.

Það verður gaman að fylgjast með þessum leikmanni taka sín næstu skref sem þrátt fyrir ungan aldur hefur spilað sig inn í meistaraflokk Selfoss með framgöngu sinni á undirbúningstímabilinu,“ segir í tilkynningu handknattleiksdeildar Selfoss.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -