Halldór Jóhann Sigfússon hafði betur í uppgjöri íslensku handknattleiksþjálfaranna í fyrsta leik dönsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik í kvöld. Lið Halldórs Jóhanns, Nordsjælland, vann TTH Holstebro sem Arnór Atlason þjálfar með eins marks mun, 33:32, á heimavelli,
Nordsjælland var fjórum mörkum yfir að loknum fyrri hálfleik, 20:16.
Báðir þjálfarar tóku við störfum sínum hjá félögunum í sumar. Halldór Jóhann var annar þjálfara TTH Holstebro á síðasta keppnistímabili.
Þetta var annar sigur Nordsjælland í röð undir stjórn Halldórs Jóhanns. Um síðustu helgi vann liðið Kolding í 16-liða úrslitum dönsku bikarkeppninnar.
Keppni fer á fulla ferð í dönsku úrvalsdeildinni í karlaflokki á morgun. Fimm leikir standa fyrir dyrum og nokkrir Íslendingar verða á sveimi.
Halldór Jóhann byrjar af krafti hjá Nordsjælland