- Auglýsing -
- Auglýsing -

Handboltapar semur við Selfoss til lengri tíma

Roberta Stropé og Karolis Stropus hafa ákveðið að flytja heim til Litháen eftir nokkur ár hér á landi. Mynd/Selfoss
- Auglýsing -

Karolis Stropus og Roberta Ivanauskaitė hafa samið við handknattleiksdeild Selfoss til þriggja ára. 

Ivanauskaitė er 23 ára skytta og spilaði síðast með Aftureldingu í Olísdeildinni 2019-2020, og skoraði 64 mörk í 14 leikjum. Hún var frá keppni á síðasta tímabili vegna meiðsla. Þar áður lék Ivanauskaitė í þýsku fyrstu deildinni með liði Neckarsulmer SU.

Stropus er þrítug rétthent skytta sem lék með Þór á Akureyri í vetur og skoraði 71 mark í 22 leikjum í Olísdeild karla. Hann þekkir vel til hér á Íslandi þar sem hann hefur einnig leikið með Aftureldingu, Víkingi og Akureyri handboltafélagi. Fyrst lék Stropus hér á landi keppnistímabilið 2015/2016 með Víkingi.

Ivanauskaitė og Stopus hafa leikið töluvert fyrir landslið Litáen og einnig með félagsliðinu Dragunas frá Klaipeda í heimalandinu, Litáen.  Stropus lék m.a. með Dragunas þegar Selfoss mætti liðinu í Evrópukeppninni haustið 2018.

„Það er því ljóst að þau eru góð viðbót við meistaraflokkana okkar.  Við bjóðum þau bæði tvö hjartanlega velkomin á Selfoss,“ segir í tilkynningu frá handknattleiksdeild Selfoss.   

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -