- Auglýsing -
- Auglýsing -

Handboltaparið verður um kyrrt nyrða

Ólafur Gústafsson og Rut Arnfjörð Jónsdóttir ásamt Jónatan Þór Magnússyni og Andra Snæ Stefánssyni þegar samningar voru endurnýjaðir fyrir tveimur árum. Mynd/KA
- Auglýsing -

Handboltaparið Rut Arnfjörð Jónsdóttir og Ólafur Gústafsson hafa tekið af öll tvímæli um úr hvorri Keflavíkinni þau ætla að róa næstu tvær handboltavertíðir eftir að þeirri sem nú stendur yfir verður lokið. Þau hafa þegar framlengt samninga sína við KA/Þór og KA til næstu tveggja ára. Tvö ár verða í sumar síðan þau gengu til liðs við Akureyrarliðin. Rut og Ólafur hafa verið orðuð við lið sunnan heiða síðustu vikur.


Greint er frá þessu á heimasíðu KA í dag. Bæði hafa þau leikið stórt hlutverk með liðum sínum síðustu tvö tímabil. Rut Arnfjörð, sem valin var handknattleikskona ársins 2021, var í lykilhlutverki hjá KA/Þór sem vann þrefalt leiktíðina 2020/2021, þ.e. Íslands- og bikarmeistaratitilinn auk meistarakeppni HSÍ haustið 2020.


„Það er áfram mikill hugur í handboltanum hjá okkur og er það algjört lykilskref að halda þeim Óla og Rut innan okkar raða. Ekki nóg með að hafa leikið afar vel með KA og KA/Þór hafa þau komið sterk inn í félagsstarfið hjá okkur og gefa mikið af sér til yngri iðkenda,“ segir í tilkynningu á heimasíðu KA í dag.

Sigursæl

Rut sem er 31 árs gömul fór fyrir liði KA/Þórs á síðustu leiktíð þar sem liðið vann allt sem hægt var að vinna og var hún valin handknattleikskona ársins árið 2021 auk þess sem hún var kjörin íþróttakona KA. Þá er hún fyrirliði íslenska landsliðsins þar sem hún hefur leikið yfir hundrað landsleiki.

Kom frá Danmörku

Rut gekk til liðs við KA/Þór frá Esbjerg í Danmörku en hún hélt út í atvinnumennsku árið 2008 þar sem hún hefur leikið með Team Tvis Holstebro, Randers, FCM Håndbold og loks Esbjerg. Með Tvis Holstebro vann hún EHF Cup árið 2013 og árið 2016 varð hún bikarmeistari með Randers. Með Esbjerg varð hún danskur meistari árið 2019 og 2020.


Ólafur Gústafsson er 32 ára gamall og er einn markahæstu leikmanna KA á núverandi tímabili. Auk þess að láta til sín taka í sóknarleiknum er Óli einn besti varnarmaður landsins en hann hefur leikið 22 landsleiki fyrir Íslands hönd en hann tók þátt á HM 2013, EM 2018 og HM 2019. Hann gekk til liðs við KA frá KIF Kolding í Danmörku.


Ólafur sem er uppalinn í FH varð Íslandsmeistari með liðinu 2011 áður en hann hélt út í atvinnumennsku með Flensburg-Handewitt í Þýskalandi. Þar lék hann í tvö ár og vann meðal annars Meistaradeild Evrópu árið 2014. Í kjölfarið gekk hann til liðs við Aalborg í Danmörku þar sem hann lék frá 2014 til 2016. Veturinn 2016-2017 lék hann með Stjörnunni í Garðabæ en þaðan gekk hann til liðs við KIF Kolding þar sem hann lék í þrjú tímabil.

Í eldlínunni á sunnudaginn

Bæði verða þau í eldlínunni með KA/Þór og KA í átta liða úrslitum bikarkeppninnar á sunnudaginn en tvíhöfði svokallaður verður í KA-heimilinu. KA/Þór leikur annað hvort við Aftureldingu eða HK í kvennaflokki og í karlaflokki takast á lið KA og Hauka. Leikirnir hefjast klukkan 14 og 16.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -