Haukar gerðu sér lítið fyrir og lögðu ÍBV í fyrstu viðureign liðanna undanúrslitum Olísdeildar kvenna í handknattleik er leikið var í Vestmannaeyjum í kvöld. Lokatölur voru 29:26. ÍBV var marki yfir að loknum fyrri hálfleik, 13:12. Næst mætast liðin í Kuehne+Nagel höllinni á laugardaginn. Vinna þarf tvisvar til þess að komast í úrslitaeinvígið gegn Fram eða Val.
ÍBV var lengst af með frumkvæðið en forskotið var aldrei mikið. Á síðustu 10 mínútum leiksins náðu Haukar frumkvæðinu. Inga Dís Jóhannsdóttir skoraði tvö góð mörk og tvö mörk eftir hraðaupphlaup frá Rakel Oddnýju Guðmundsdóttur og Anítu Eik Jónsdóttur skiluðu fjögurra marka forskoti, 28: 24, þegar þrjár mínútur voru til leiksloka.
Sara Sif Helgadóttir markvörður Hauka fékk höfuðhögg snemma í síðari hálfleik og kom ekkert meira við sögu í leiknum.
Jóhanna Margrét Sigurðardóttir lék með Haukum að þessu sinni en hún var ekki með í leikjunum við KA/Þór vegna afleiðinga höfuðhöggs.
Mörk ÍBV: Sandra Erlingsdóttir 9/2, Birna Berg Haraldsdóttir 5, Alexandra Ósk Viktorsdóttir 3, Amelía Dís Einarsdóttir 3, Ásta Björt Júlíusdóttir 2, Ásdís Halla Hjarðar 1, Britney Emilie Florianne Cots 1, Klara Káradóttir 1, Lilja Kristín Svansdóttir 1.
Varin skot: Amalia Frøland 8, 24,2% – Ólöf Maren Bjarnadóttir 0.
Mörk Hauka: Embla Steindórsdóttir 7/5, Jóhanna Margrét Sigurðardóttir 4, Rakel Oddný Guðmundsdóttir 4, Sonja Lind Sigsteinsdóttir 4, Inga Dís Jóhannsdóttir 3, Sara Marie Odden 3, Aníta Eik Jónsdóttir 2, Thelma Melsted Björgvinsdóttir 2.
Varin skot: Sara Sif Helgadóttir 10, 35,7% – Elísa Helga Sigurðardóttir 2/1, 20%.
Tölfræði leiksins hjá HBStatz.


