Haukar hafa fjórum sinnum unnið bikarkeppnina í kvennaflokki í átta tilraunum. Fyrsti titillinn vannst árið 1997 í æsispennandi úrslitaleik við Val í Laugardalshöllinni. Á þeim árum voru Haukar með besta lið landsins í kvennaflokki ásamt Stjörnunni og Víkingi. Haukar lögðu Stjörnuna á sannfærandi hátt í undanúrslitum, 22:16, og mættu Val í úrslitaleik.
Vigdís skellti í lás
Valur var á þessum tíma í neðri hluta deildarinnar og talið að úrslitaleikurinn yrði leikur kattarins að músinni. Annað kom á daginn. Þegar á hólminn var komið hafði Valur frumkvæðið lengst af. Haukum tókst að jafna metin, 13:13, og skora þrjú síðustu mörkin. Skipti miklu máli að markvörður Hauka, Vigdís Sigurðardóttir, varði eins og berserkur. Hún skellti í lás og samherjar hennar í sókninni skoruðu þrjú síðustu mörkin. Hulda Bjarnadóttir og Judit Eztergal skoruðu fjögur mörk hvor fyrir Hauka en Sigurlaug Rúnarsdóttir var atkvæðamest hjá Val með sjö mörk.
Eftir sigurinn 1997 þá fylgdu sigrar í bikarkeppninni 2003 gegn ÍBV, 23:21, 2006 aftur á móti ÍBV, 29:26, og árið eftir, 26:22, sigur á Gróttu.
Gríðarleg spenna 2003
Um úrslitaleikinn 2003 var sagt að ekki hefði farið fram eins spennandi úrslitaleikur í kvennaflokki og í það skiptið. Haukar voru marki yfir skömmu fyrir leikslok þegar dæmdur var ruðningur á leikmann liðsins. ÍBV sneri vörn í sókn en varð á að vera með einum leikmanni of marga inná og tapaði þar með boltanum. Tækifæri á að jafna metin rann liðinu úr greipum og Haukar innsigluðu sigurinn.
Hanna Guðrún skoraði 14 mörk
Þegar Haukar unnu ÍBV í úrslitaleiknum 2006, 29:25, fór Hanna Guðrún Stefánsdóttir á kostum og skoraði 14 mörk sem er met í úrslitaleik í bikarkeppni kvenna.
Hanna Guðrún kom einnig mjög við sögu í sigri Hauka árið eftir á Gróttu, 26:22. Hún skoraði sjö mörk eins og Ramune Pekarskyte sem reyndist leikmönnum Gróttu erfið í úrslitaleik sem aldrei varð spennandi.
Úrslitaleikur Fram og Hauka í Poweradebikar kvenna hefst á Ásvöllum í dag klukkan 13.30.