- Auglýsing -
Haukur Þrastarson er kominn á blað í pólsku úrvalsdeildinni í handknattleik á þessu tímabili. Hann var í fyrsta sinn í dag í leikmannahópi meistaranna í Vive Kielce í deildarleik á þessu keppnistímabili er Kielce mætti Energa MKS Kalisz á útivelli og vann örugglega, 37:29. Kielce var fimm mörkum yfir í hálfleik, 20:15.
Haukur tók talsvert mikið þátt í leiknum og skoraði m.a. þrjú mörk. Sigvaldi Björn Guðjónsson var ekki í leikmannahópi pólsku meistarana að þessu sinni.
Kielce hefur unnið fjórar fyrstu viðureignir sínar á tímabilinu og er í efsta sæti deildarinnar. Liðsmenn Energa MKS Kalisz hafa unnið tvo en tapað tveimur leikjum.
- Auglýsing -