Haukur Þrastarson slær ekki sló ekki slöku við í leik með þýska liðinu Rhein-Neckar Löwen í kvöld fremur en síðustu vikur og mánuði. Hann skoraði 10 mörk og gaf fimm stoðsendingar í öruggum sigri Rhein-Neckar Löwen í heimsókn til Stuttgart í Porsche Arena, 32:26, að viðstöddum 5.600 áhorfendum.
Haukur skoraði tvö marka sinna úr vítaköstum. Hann var markahæstur hjá Rhein-Neckar Löwen-liðinu sem var marki undir í hálfleik, 14:13.
David Späth markvörður Ljónanna var frábær í markinu, varði 19 skot, 44%.
Lenny Rubin skoraði sex mörk fyrir Stuttgart.
Rhein-Neckar Löwen situr í 7. sæti deildarinnar og virðist ekki eiga mikla möguleika á að komast mikið ofar.
Naumt tap hjá Rúnari
HSG Wetzlar, sem Rúnar Sigtryggsson þjálfar, tapaði naumlega fyrir Göppingen, 31:30, í heimsókn í suðurhlutann. Wetzlar er áfram í harðri fallbaráttu og hefði svo sannarlega ekki veitt af a.m.k. öðru stiginu úr viðureigninni.
Ýmir Örn Gíslason lék ekki með Göppingen í kvöld, ekkert fremur en í síðustu leikjum. Hann er meiddur á hné eins og kom fram á handbolti.is í gær.
Staðan í þýsku 1. deildinni:



