- Auglýsing -
- Auglýsing -

Héðan og þaðan: Samdi í fæðingarorlofi og flutningar

Mynd/EPA
- Auglýsing -
  • Danska landsliðskonan, Sarah Iversen, skrifaði undir nýjan samning við bikarmeistara Herning/Ikast sem gildir út leiktíðina vorið 2023. Iversen leikur ekki með Herning/Ikast á þessari leiktíð vegna þess að hún væntir barns í janúar. Hún mætir til leiks af fullum krafti eftir ár. 
  • Franski landsliðsmaðurinn og línumaðurinn þrautseigi Cédric Sorhaindo framlengdi samning sinn við Barcelona til eins árs.
Alen Blažević t.v. í hörðum slag. Mynd/EPA
  • Króatíski varnarsérfræðingurinn Alen Blažević yfirgaf Pick Szeged í sumar og gekk til liðs við rúmenska liðið HC Dobrogea Sud.
  • Þýski línumaðurinn Manuel Späth ákvað að freista gæfunnar í Portúgal á næsta keppnistímabili. Hann er nú liðsmaður Porto eftir að hafa leikið með Stuttgart um skeið.
  • Hinn efnilegi portúgalski markvörður, Diogo Valerio, leikur undir stjórn Guðjóns Vals Sigurðssonar hjá Gummersbach í vetur. Hann var á samningi hjá Benfica en fékk ekki mörg tækifæri þar á síðasta vetri og var þá lánaður til OS Belenenses.
Zlatko Horvat flutti sig yfir landamærin til N-Makedóníu. Mynd/EPA
  • Hinn þekkti króatíski handknattleiksmaður Zlatko Horvat yfirgaf óvænt uppeldisfélag sitt RK Zagreb í sumar og skrifaði undir eins árs samning við Metalurg í Norður-Makedóníu.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -