Handknattleiksdeild ÍR hélt lokahóf sitt í félagsheimilinu í Skógarseli. Kátt var á hjalla eftir langt og strangt keppnistímabil sem lauk með sigri ÍR á Selfossi í umspili Olísdeildar kvenna í síðustu viku eftir fimm hörkuleiki.
Nokkrir leikmenn voru verðlaunaðir fyrir að skara framúr á keppnistímabilinu. Markverðir beggja meistaraflokksliðanna, Hildur Øder Einarsdóttir og Ólafur Rafn Gíslason, voru valin bestu leikmennirnir.
Meistaraflokkur kvenna
Varnarmaður: Matthildur Lilja Jónsdóttir.
Sóknarmaður: Karen Tinna Demian.
Efnilegust: Sylvía Sigríður Jónsdóttir.
Best: Hildur Øder Einarsdóttir.
Framfarir: Anna María Aðalsteinsdóttir.
![](https://handbolti.is/wp-content/uploads/2023/05/IR-konur-1024x685.jpg)
![](https://handbolti.is/wp-content/uploads/2023/05/IR-karla-1-1024x698.jpg)
Meistaraflokkur karla
Framfarir: Hrannar Ingi Jónsson.
Efnilegastur: Róbert Snær Örvarsson.
Varnamaður: Bjarki Steinn Þórsson.
Sóknarmaður: Viktor Sigurðsson.
Bestur: Ólafur Rafn Gíslason.
Einnig voru sjálfboðaliðum veittur þakklætisvottur fyrir störf sín á keppnistímabilinu.
![](https://handbolti.is/wp-content/uploads/2023/05/IR-vidur-1024x551.jpg)