- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

Hillir undir HM-farseðil hjá Færeyingum eftir sigur í Tuzla

- Auglýsing -

Færeyingar eru í vænlegri stöðu til að tryggja sér fyrsta sæti á heimsmeistaramóti karla í handknattleik. Þeir unnu Bosníumenn, 24:22, í fyrri umspilsleik þjóðanna í Tuzla í Bosníu í kvöld. Síðari viðureignin fer fram í þjóðarhöllinni í Þórshöfn á laugardagskvöld og mun samanlagður sigurvegari leikjanna tveggja taka þátt í HM í Þýskalandi í janúar á næsta ári.

Í afar spennandi leik í Tuzla voru Færeyingar, sem léku án síns öflugasta leikmanns, Elias Ellefsen á Skipagøtu, með frumkvæðið lengst af. Í hálfleik var staðan 12:10, Færeyjum í vil.

Vörn og markvarsla

Pauli Jacobsen, markvörður færeyska landsliðsins, fór hamförum og varði 17 skot, 44% hlutfallsmarkvarsla. Pætur Mikkjalsson og Teis Horn Rasmussen voru í hjarta varnarinnar og fóru á kostum.

Hægri hornamaðurinn Hákun West av Teigum var markahæstur með 11 mörk. Vilhelm Poulsen, fyrrverandi leikmaður Fram, var næstur á eftir með fimm mörk.

Valsmennirnir Bjarni í Selvindi og Allan Norðberg voru báðir með færeyska liðinu í leiknum. Bjarni skoraði eitt mark en Allan ekkert.

Úrslit leikja í umspili HM karla í dag:
Svartfjallaland – Slóvenía 28:29 (12:16).
Serbía – Ungverjaland 31:29 (18:12).
Slóvakía – Norður-Makedónía 24:31 (13:18).
Bosnía – Færeyjar 22:24 (10:12).

  • Spánverjar og Ísraelsmenn mætast í Buenos Aires í Argentínu í kvöld. Leikurinn hefst klukkan 22 að íslenskum tíma.


Úrslit leikja umspilsins í gærkvöld:
Austurríki – Pólland 25:26 (13:15).
Noregur – Tyrkland 43:30 (23:20).
Grikkland – Holland 29:27 (14:12).
Sviss – Ítalía 32:29 (16:17).
Tékkland – Frakkland 26:37 (14:20).

Síðari umferð – laugardag:
Tyrkland – Noregur.
Færeyjar – Bosnía.
Ísrael – Spánn.

Síðari umferð – sunnudagur:
Holland – Grikkland.
Pólland – Austurríki.
Frakkland – Tékkland.
Slóvenía – Svartfjallaland.
Ungverjaland – Serbía.
Ítalía – Sviss.
N-Makedónía – Slóvakía.

BEINLEIÐIS: Føroyskur fyrimunir undan seinna HM-røkkstøkkdystinum

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -