Önnur umferð í A, B, C og D-riðlum heimsmeistaramóts kvenna í handknattleik á Spáni fer fram í dag. Í gær tryggðu Þýskaland, Ungverjaland, Danmörk, Suður Kórea, Brasilía og Spánn sér sæti í milliriðlakeppninni þótt ein umferð sér eftir í E, F, G og H-riðlum.
Telja má víst að Svíþjóð, Rúmenía, heimsmeistarar Hollands, Serbía og Noregur með Þóri Hergeirsson við stjórnvölinn fljóti áfram í milliriðla eftir að leikir dagsins verða að baki. Himinn og hafa skilur mörg liðin og margir afar ójafnir leikir.
Þrátt fyrir mikinn mun verða áhugaverðir leikir á dagskrá. Má þar nefna viðureign Slóveníu og Frakklands, sem sýndur verður m.a. á RÚV2. Einnig er ekki hægt að útiloka að leikur Póllands og Rússlands geti orðið skemmtilegur. Þótt oft hafi verið talsverður munur í gegnum tíðina á landsliðum þessar tveggja þjóða þá hefur pólska landsliðið oft reynst Rússum óþægur ljár í þúfu.
Leikur Angólabúa og Svartfellinga ræður væntanlega úrslitum um hvort þeirra fylgir Frökkum og Slóvenum áfram í milliriðlakeppnina.
Kl. 14.30:
D: Svíþjóð – Púertó Ríkó.
Kl. 17:
A: Slóvenía – Frakkland – sýndur á RÚV2.
B: Pólland – Rússland.
C: Rúmenía – Kasakstan.
D: Úsbekistan – Holland.
Kl. 19.30:
A: Svartfjallaland – Angóla.
B: Serbía – Kamerún.
C: Íran – Noregur – sýndur á RÚV2.
Staðan í A, B, C og D-riðlum: