Ísland leikur sinn síðasta leik í riðlakeppni HM í kvöld þegar það mætir landsliði Marokkó í New Capital Sport Senter í Kaíró. Flautað verður til leiks klukkan 19.30 eins og í fyrri leikjum liðsins í mótinu. Keppni lýkur í fjórum riðlum í kvöld. Þrjú efstu liðin úr hverjum riðli fara í milliriðlakeppni. Neðstu lið úr hverjum riðli taka þátt í keppni um forsetabikarinn.
Þrjú efstu lið E-riðils blandast saman í riðil með liðum úr F-riðli. Sömu sögu er að segja liðin í G- og H-riðlum.
Leikir dagsins eru:
E-riðill:
Frakkland – Sviss, kl. 17.
Noregur – Austurríki, kl. 19.30.
![](https://www.handbolti.is/wp-content/uploads/2021/01/E-2-1024x576.jpg)
F-riðill:
Portúgal – Alsír, kl. kl. 17.
Ísland – Marokkó, kl. 19.30.
![](https://www.handbolti.is/wp-content/uploads/2021/01/F-2-1024x576.jpg)
G-riðill:
Norður-Makedónía – Chile, kl. 14.30.
Svíþjóð – Egyptaland, kl. 17.
![](https://www.handbolti.is/wp-content/uploads/2021/01/G-2-1024x576.jpg)
H-riðill:
Suður-Kórea – Landslið Rússlands, kl. 14.30.
Slóvenía – Hvíta-Rússland, kl. 17.
![](https://www.handbolti.is/wp-content/uploads/2021/01/E-2-1024x576.jpg)