- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Hópurinn sem mætir Pólverjum í Hamri í dag

Arnar Pétursson landsliðsþjálfari kvenna. Ljósmynd/Hafliði Breiðfjörð
- Auglýsing -

Jóhanna Margrét Sigurðardóttir og Katrín Tinna Jensdóttir liðsfélagar hjá sænska úrvalsdeildarliðinu Skara HF verða utan landsliðshópsins í dag þegar íslenska landsliðið hefur keppni á Póstbikarmótinu, Posten Cup, í Noregi í dag. Upphafsleikurinn verður við landslið Póllands. Leikurinn hefst klukkan 15.45 og verður bein útsending hjá RÚV auk þess sem textalýsing verður á handbolti.is.


Leikurinn fer fram í Boligpartner Arena í Hamri. Íslenska landsliðið kom til Noregs í gær og dvelur fram yfir helgi í Lillehammer.

Fram kemur í tilkynningu frá HSÍ að morguninn fór í létta styrktaræfingu undir stjórn Hjartar Hinrikssonar, stytrktarþjálfara liðsins áður en haldið var til málsverðar og fundar með þjálfarateyminum.

Íslenska landsliðið leikur við heims- og Evrópumeistara Noregs á laugardaginn og mætir landsliði Angóla á sunnudaginn á Póstbikarmótinu.

Átján leikmenn eru í íslenska landsliðshópnum sem tekur þátt í Póstbikarmótinu og HM. Af þeim má tefla 16 leikmönnum fram í hverjum leik.

Þessar mæta Pólverjum í dag.

Markverðir:
Elín Jóna Þorsteinsdóttir, EH Aalborg (44/1).
Hafdís Renötudóttir, Val (45/2).
Aðrir leikmenn:
Andrea Jacobsen, Silkeborg-Voel (41/46).
Berglind Þorsteinsdóttir, Fram (11/5).
Díana Dögg Magnúsdóttir, BSV Sachsen Zwickau (40/48).
Elín Rósa Magnúsdóttir, Val (4/11).
Elísa Elíasdóttir, ÍBV (4/0).
Hildigunnur Einarsdóttir, Val (96/108).
Katla María Magnúsdóttir, Selfossi (0/0).
Lilja Ágústsdóttir, Val (10/4).
Perla Ruth Albertsdóttir, Selfossi (34/53).
Sandra Erlingsdóttir, Tus Metzingen (22/95).
Sunna Jónsdóttir, ÍBV (77/59).
Thea Imani Sturludóttir, Val (64/124).
Þórey Anna Ásgeirsdóttir, Val (38/21).
Þórey Rósa Stefánsdóttir, Fram (123/348).

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -