- Auglýsing -
- Auglýsing -
-Auglýsing-

HSÍ tekur í taumana vegna fordóma í garð Hafdísar í leik í Eyjum

- Auglýsing -

„Við lítum málið grafalvarlegum augum og munum fylgja þessu fast eftir og nýta til þess regluverk okkar,“ segir Sólveig Jónsdóttir framkvæmdastjóri HSÍ við handbolta.is í dag vegna ábendingar sem HSÍ hefur borist, og handbolti.is hefur í sínum fórum, um fordómafulla hegðun stuðningsmanna ÍBV í garð Hafdísar Renötudóttir markvarðar Vals og landsliðsins í öðrum úrslitaleik Vals og ÍBV um Íslandsmeistaratitilinn í handknattleik kvenna sem fram fór í Vestmannaeyjum á þriðjudagskvöld.

Á upptöku frá leiknum heyrast hróp sem beindust að Hafdísi. Í hrópunum er vísað til kynlífs tveggja kvenna. Hafdís er samkynhneigð.

Handkastið vakti fyrst athygli á málinu í dag og birti neðangreint myndskeið þar sem heyra má fordómafull hróp í garð Hafdísar hljóma úr gjallarhorni.


„HSÍ fordæmir hvers kyns fordóma og við munum grípa í taumana vegna þessa og koma þessu í farveg,“ bætti Sólveig við og vísaði í siðareglur HSÍ en sjöttu og sjöundu grein þeirra er að finna hér fyrir neðan.

6. Gættu jafnræðis og varastu að misbjóða virðingu einstaklinga eða hópa, t.d. hvað varðar kyn, kynþátt, þjóðernisuppruna, trú, lífsskoðun, fötlun, félagslega stöðu, aldur, kynhneigð, kynvitund, kyneinkenni eða kyntjáningu á öllum sviðum samfélagsins. Allri mismunun er hafnað.

7. Hvers konar kynferðislegri eða kynbundinni áreitni, einelti, ofbeldi eða annarri vanvirðandi framkomu er hafnað.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -