- Auglýsing -
Haukar, ÍBV og KA eru skráð til leiks í Evrópubikarkeppni karla í handknattleik sem hefst í byrjun september. ÍBV verður með þegar dregið verður til fyrstu umferðar í næsta þriðjudag. Haukar og KA mæta til leiks í aðra umferð sem leikin verður í lok október og í byrjun nóvember.
ÍBV verður í efri styrkleikaflokki þegar dregið verður til fyrstu umferðar.
KA verður í efri styrkleikaflokki þegar dregið verður í aðra umferð 20. september. Haukar taka sæti í neðri styrkaflokki með sigurliðum úr fyrstu umferð.
Nánar er hægt að skoða styrkleikalistana hér og velta fyrir sér hugsanlegum mótherjum íslensku liðanna með því að smella hér.
- Auglýsing -