- Auglýsing -
- Auglýsing -

Ísak flytur til Vestmannaeyja

Ísak Rafnsson t.v. ásamt Grétari Þór Eyþórssyni, formanni handknattleiksdeildar ÍBV. Mynd/ÍBV
- Auglýsing -

Hafnfirðingurinn Ísak Rafnsson hefur samið við ÍBV um að leika með liði félagsins næstu þrjú ár frá og með næsta keppnistímabili. ÍBV segir frá þessu í kvöld.


Ísak er hávaxinn og sterkur leikmaður og hefur verið einn af betri varnarmönnum Olísdeildarinnar um nokkurra ára skeið. Ísak hefur leikið með FH allan sinn feril að leiktíðinni 2018/2019 undanskilinni þegar hann var í herbúðum austurríska liðsins Schwaz Hand­ball Tirol.


„Koma Ísaks til ÍBV er mikið gleðiefni og mun hann styrkja liðið okkar fyrir átökin næstu tímabil.


Það er gaman að geta þess að unnusta Ísaks er Sigríður Lára Garðarsdóttir, sem Eyjamenn þekkja vel úr fótboltanum hér í gegnum tíðina,“ segir m.a. í tilkynningu frá handknattleiksdeild ÍBV sem barst í kvöld.


- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -