Hið unga lið Drammen með Ísak Steinsson markvörð innanborðs leikur til úrslita í úrslitakeppni norsku úrvalsdeildarinnar í fyrsta sinn í 15 ár. Drammen vann Elverum, 33: 32, í síðari undanúrslitaleik liðanna á heimavelli í kvöld. Niðurstaðan í tveggja leikja rimmu liðanna kemur mjög á óvart, ekki síst í ljósi þess að Elverum hafði nokkra yfirburði í deildarkeppninni í vetur.
Ísak tók þátt í hluta leiksins í kvöld en því miður er tölfræði leiksins á heimasíðu norska handknattleikssambandsins vart marktæk.
Ísak og félagar unnu einnig fyrri viðureign liðanna sem fram fór í Elverum á laugardaginn, 36:35, eftir framlengingu.
Tryggvi Þórisson leikmaður Elverum skoraði ekki mark í leiknum ef marka má tölfræði leiksins. Honum var einu sinni vikið af leikvelli.
Drammen mætir annaðhvort Kolstad eða Bergen í úrslitarimmu. Staðan er jöfn í rimmu Kolstad og Bergen og mætast liðin í oddaleik í Þrándheimi á laugardaginn.
15 ÅRS VENTETID OVER – DRAMMEN MED NY HÅNDBALLBOMBE


