- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Ísland hefur einu sinni unnið tvo fyrstu leikina á EM

Guðmundur Þórður Guðmundsson, landsliðsþjálfari, hefur valið leikmenn í leikina við Austurríki. Mynd/Hafliði Breiðfjörð
- Auglýsing -

Íslenska landsliðið í handknattleik er að taka þátt í lokakeppni Evrópumóts í 12. sinn. Í kvöld leikur liðið annan leik sinn í keppninni að þessu sinni þegar það mætir hollenska landsliðinu í MVM Dome í Búpdapest klukkan 19.30. Ísland vann Portúgal í upphafsleik liðanna í keppninni að þessu sinni á föstudagskvöld, 28:24.

Bjarki Már Elísson í þann mund að skora eitt fjögurra marka sinna gegn Portúgal á föstudaginn. Mynd/Hafliði Breiðfjörð


Aðeins einu sinni hefur íslenska landsliðið unnið tvo fyrstu leiki sína í lokakeppni EM og það var á síðasta móti, EM 2020 í Svíþjóð. Þá vann Ísland heimsmeistara Dana, 31:30, í fyrsta leik og fylgdi því eftir með að leggja Rússa tveimur dögum síðar, 34:23.

Fimm sinnum hefur íslenska landsliðið verið taplaust eftir fyrstu leikina tvo í lokakeppni EM, 2002, 2006, 2010, 2014 og 2020.


Hér fyrir neðan eru úrslit í tveimur fyrstu leikjum á EM frá árinu 2000 þegar Ísland var með í fyrsta sinn.

Björgvin Páll Gústavsson, markvörður, og Arnar Freyr Arnarsson. Mynd/Hafliði Breiðfjörð


2000 – Króatía:
Ísland – Svíþjóð 23:31.
Ísland – Portúgal 25:28.

2002 – Svíþjóð:
Ísland – Spánn 24:24.
Ísland – Slóvenía 31:25.

2004 – Slóvenía:
Ísland – Slóvenía 28:34.
Ísland – Ungverjaland 29:32.

2006 – Sviss:
Ísland – Serbía/Svartfjallaland 36:31.
Ísland – Danmörk 28:28.

2008 – Noregur:
Ísland – Svíþjóð 19:24.
Ísland – Slóvakía 28:22.

2010 – Austurríki:
Ísland – Serbía 29:29.
Ísland – Austurríki 37:37.


2012 – Serbía:
Ísland – Króatía 29:31.
Ísland – Noregur 34:32.

2014 – Danmörk:
Ísland – Noregur 31:26.
Ísland – Ungverjaland 27:27.

2016 – Pólland:
Ísland – Noregur 26:25.
Ísland – Hvíta-Rússland 38:39.

2018 – Króatía:
Ísland – Svíþjóð 26:24.
Ísland – Króatía 22:29.

2020 – Svíþjóð/Noregur/Austurríki:
Ísland – Danmörk 31:30.
Ísland – Rússland 34:23.

2022 – Ungverjaland/Slóvakía:
Ísland – Portúgal 28:24.
Ísland – Holland ??:??.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -