- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -

Ísland í austur-evrópskum riðli á EM 2024

Íslenska landsliðið leikur við Færeyjar í Mynd/Hafliði Breiðfjörð
- Auglýsing -

Þriðja stórmótið í röð dróst íslenska landsliðið í riðil með Ungverjum þegar dregið var í riðla Evrópumóts karla í handknattleik í Düsseldorf í dag. Ísland verður í sannkölluðum austur-Evrópuriðli á mótinu því auk Ungverja verða Serbar og Svartfellingar andstæðingar í riðlinum sem leikinn verður í Ólympíuhöllinni í München frá 12., 14. og 16. janúar.

Mótið fer fram fram frá 10. til 28. janúar á næsta ári. Þýskaland og Sviss mætast í upphafsleiknum á MERKUR Spiel-Arena í Düsseldorf að viðstöddum 50 þúsund áhorfendum.

Um leið og búið var að draga þá skýrðist í hvaða röð leikir Íslands verða í riðlakeppninni

12. janúar: Ísland – Serbía.
14. janúar: Ísland – Svartfjallaland.
16. janúar: Íslands – Ungverjaland
.

Tvær efstu þjóðir hvers riðils komast áfram í milliriðla. Ef íslenska landsliðið kemst áfram flytur það sig um set til Kölnar og mætir tveimur efstu liðum A og B-riðils. Leikdagar í milliriðli verða 18., 20., 22. og 24. janúar í Lanxess-Arena í Köln.

Ísland var í riðli með Ungverjum á EM 2022 og á HM í upphafi þessa árs. Huggun er harmi gegn að litlar líkur eru á leik við Portúgal sem hefur elt Ísland eins og skugginn á stórmótum í undankeppni mörg undanfarin ár.

Eftifarandi lið drógust saman:

A-riðill:B-riðill:C-riðill:
Düss./BerlínMannheimMünchen
FrakklandSpánnÍsland
ÞýskalandAusturríkiUngverjaland
N-MakedóníaKróatíaSerbía
SvissRúmeníaSv.fjallaland
D-riðill:E-riðill:F-riðill:
BerlínMannheimMünchen
NoregurSvíþjóðDanmörk
SlóveníaHollandPortúgal
PóllandBosníaTékkland
FæreyjarGeorgíaGrikkland


Handknattleikssamband Ísland segir í tilkynningu að miðasala fyrir stuðningsmenn Íslands hefjist á næstu dögum. Væntanlega tryggir sambandið sér talsverðan fjölda miða.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -