- Auglýsing -
Handknattleiksmennirnir Arnar Birkir Hálfdánsson og Tryggvi Þórisson er komnir áfram í átta liða úrslit sænsku bikarkeppninnar með liðum sínum eftir að bæði lið unnu viðureignir sínar í dag í síðari umferð 16-liða úrslita.
Arnar Birkir skoraði fimm mörk fyrir Amo í fjögurra marka sigri á Drott Halmstad, 36:32, á heimavelli. Amo vann einnig fyrri viðureignina sem var í Halmstad á miðvikudagskvöld, 30:28.
Tryggvi og liðsmenn meistaraliðs IK Sävehof lögðu Malmö á heimavelli á sannfærandi hátt, 34:30. Selfyssingurinn skoraði ekki mark í leiknum. IK Sävehof hafði einnig betur í viðureigninni í Malmö á dögunum, 36:34, og vann þar með samanlagt, 70:64.
- Auglýsing -