Kolstad tókst að snúa við taflinu í dag og vinna Bergen Håndball, 33:30, í annarri viðureign liðanna í undanúrslitum úrslitakeppni norsku úrvalsdeildarinnar í handknattleik karla. Björgvinjarliðið vann fyrstu viðureignina í Þrándheimi í síðustu viku. Þess vegna voru leikmenn Kolstad með bakið upp við vegg í dag. Oddaleikur liðanna um sæti í úrslitum verður í Þrándheimi á laugardaginn.
Staðan var jöfn í hálfleik, 13:13. Leikmenn Kolstad tóku frumkvæðið snemma í síðari hálfleik og voru með yfirhöndina til leiksloka.
Benedikt Gunnar Óskarsson skoraði þrjú mörk fyrir Kolstad og gaf átta stoðsendingar. Sigvaldi Björn Guðjónsson skoraði ekki mark. Simon Jeppsson og Martin Hernes Hovde voru markahæstir með sjö mörk hvor.
Ciljan Sagosen skoraði átta mörk fyrir Bergen.
Sigurjón Guðmundsson varði sex skot í marki Kolstad, sé eitthvað að marka tölfræðina á heimasíðu norska handknattleikssambandsins.
Drammen og Elverum mætast öðru sinni í Drammen á morgun í hinni viðureign undanúrslita. Drammen vann fyrsta leikinn.



