Íslandsmeistarar Vals verða í efra styrkleikaflokki en Haukar í þeim neðri þegar dregið verður í 64 liða úrslit Evrópubikarkeppni kvenna í handknattleik þriðjudaginn 16. júlí eftir viku stundvíslega klukkan 9 árdegis.
Handknattleikssamband Evrópu, EHF, birti í morgun styrkleikaröðun eftir að hafa staðfest þátttöku 64 liða í keppninni. Fyrsta umferð EHF-keppninnar fer fram helgarnar 5. og 6. október annarsvegar og 12. og 13. október.
Haukar senda kvennalið sitt til keppni í Evrópubikarkeppninni eftir nokkurra ára fjarveru. Valur hefur verið með undanfarin ár.
Hér fyrir neðan er styrkleikaröðunin og flokkarnir tveir.
Sjá einnig:
Haukar stökkva yfir fyrstu umferð
FH fer rakleitt í riðlakeppnina – Valur í forkeppni Evrópudeildar