Í annað sinn í röð tefla Ítalir fram sveit sinni á heimsmeistaramóti karla í handknattleik þegar flautað verður til leiks í Þýskalandi í janúar á næsta ári. Ítalska landsliðið lagði svissneska landsliðið með sjö marka mun, 38: 31, í síðari viðureigninni í umspili HM í Faenza í dag. Sviss vann heimaleik sinn á dögunum með þriggja marka mun. Ítalía vann samanlagt, 67: 63.
Ítalska landsliðið lék blússandi sóknarleik í dag og hafði átta marka forskot í hálfleik, 20:12. Ekki stóð steinn yfir steini í varnarleik Sviss í síðari hálfleik, fremur en í þeim fyrri.
Gianluca Dapiran líkaði við lífið í Faenza og skoraði 12 mörk fyrir ítalska landsliðið. Leopold Noam skoraði sjö mörk fyrir Sviss og var markahæstur.
Tapið er töluvert áfall fyrir Sviss sem verður einn þriggja gestgjafa EM 2028. Hæpið er að Sviss hreppi „wild card“ á HM 2027. Alltént sé lítið til þess að t.d. aðrar Evrópuþjóðir eins og Ungverjaland, Austurríki og Svartfjallaland töpuðu sínum umspilsleikjum með minni mun. Annars eru vegir Hassan Moustafa, forseta Alþjóða handknattleikssambandsins og handhafa hinna svokölluðu „wild card“ eða boðskortanna tveggja, órannsakanlegir.
Ítalir hafa nú tryggt sér keppnisrétt á þremur stórmótum í röð: HM 2025, EM 2026 og nú HM 2027.


