- Auglýsing -
- Auglýsing -

Jakob Martin heldur tryggð við heimaslóðir

Jakob Martin Ásgeirsson í leik með FH gegn Gróttu á síðasta tímabili. Mynd/J.L.Long
- Auglýsing -

Vinstri hornamaðurinn Jakob Martin Ásgeirsson hefur framlengt samning sinn við handknattleiksdeild FH. Jakob Martin er uppalinn í FH og hefur alla tíð spilað í Kaplakrikanum. Hann skoraði 50 mörk í 20 leikjum með FH í Olísdeildinni á síðasta keppnistímabili.


„Jakob Martin er mjög öflugur leikmaður á báðum endum vallarins, virkilega sterkur hraðaupphlaupsmaður og gefur FH-liðinu mikla orku. Það verður gaman að fylgjast með Jakobi Martin í vetur og við væntum mikils af honum enda einn af lykilleikmönnum liðsins,“ segir Sigurgeir Árni Ægisson, framkvæmdastjóri handknattleiksdeildar FH í tilkynningu sem deildin sendi frá sér af þessu tilefni.



Jakob Martin mætir væntanlega galvaskur til leiks með samherjum sínum í FH þegar Hafnarfjarðarmótið hefst í næstu viku.


Fyrsti leikur FH-inga í Olísdeildinni á nýju keppnistímabili verður í Kaplakrika gegn Stjörnunni fimmtudaginn 8. september.


- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -