- Auglýsing -
- Auglýsing -

Janus Daði og Ómar Ingi utan hóps gegn Króötum

Janus Daði Smárason er kominn í undanúrslit þýsku bikarkeppninnar með Magdeburg. Mynd/Hafliði Breiðfjörð
- Auglýsing -

Janus Daði Smárason og Ómar Ingi Magnússon verða ekki í leikmannahópi landsliðsins sem mætir Króötum í 3. umferð milliriðlakeppni Evrópumótsins í handknattleik. Í þeirra stað taka Einar Þorsteinn Ólafsson og Kristján Örn Kristjánsson, Donni, sæti í 16-manna hópnum.

Janus Daði og Ómar Ingi eru veikir. Þeir eru herbergisfélagar. Aðrir leikmenn eru klárir í slaginn.

Leikurinn við Króata hefst klukkan 14.30 í Lanxess Arena í Köln.

Markverðir:
Björgvin Páll Gústavsson, Val (265/21).
Viktor Gísli Hallgrímsson, HBC Nantes (56/1).
Aðrir leikmenn:
Arnar Freyr Arnarsson, MT Melsungen (92/98).
Aron Pálmarsson, FH (175/661).
Bjarki Már Elísson, Telekom Veszprém (112/385).
Einar Þorsteinn Ólafsson, Fredericia (6/0).
Elliði Snær Viðarsson, VfL Gummersbach (44/93).
Elvar Örn Jónsson, MT Melsungen (73/170).
Gísli Þorgeir Kristjánsson, SC Magdeburg (58/126).
Haukur Þrastarson, Barlinek Industria Kielce (29/36).
Kristján Örn Kristjánsson, PAUC (32/60)
Óðinn Þór Ríkharðsson, Kadetten Schaffhausen (36/98).
Sigvaldi Björn Guðjónsson, Kolstad Håndball (70/199).
Stiven Tobar Valencia, Benfica (13/11).
Viggó Kristjánsson, SC DHfK Leipzig Handball (51/142).
Ýmir Örn Gíslason, Rhein-Neckar Löwen (85/36).

Janus Daði Smárason, SC Magdeburg (79/128) og Ómar Ingi Magnússon, SC Magdeburg (81/279) eru ekki í hóp í dag sökum veikinda.

- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -
- Auglýsing -