Jökull Blöndal Björnsson og Patrekur Smári Arnarsson hafa framlengt samningum sínum við handknattleiksdeild ÍR til ársins 2029. Báðir spiluðu þeir lykilhlutverk í ÍR-liðinu á nýafstöðnu tímabili í Olísdeild karla en ÍR féll úr deildinni. Báðir tóku þeir þátt í æfingum A-landsliðsins í byrjun mars.
Jökull, sem er fæddur árið, leikur í vinstri skyttu og fékk vaxandi hlutverk á tímabilinu. Hann skoraði 122 mörk í 21 leik í vetur en hann hefur einnig verið í hópi U20 ára landsliðsins.
Patrekur er fæddur árið 2008 og leikur í stöðu línumanns. Hann steig stór skref fram á við á tímabilinu og var undir lokin orðinn lykilmaður liðsins á báðum endum vallarins. Hann er sem stendur fyrirliði U18 ára landsliðsins sem fer á fyrsta stórmótið í sumar.



