- Auglýsing -
Jón Ásgeir Eyjólfsson hefur gert nýjan samning við handknattleiksdeild Stjörnunnar til ársins 2026. Jón Ásgeir er 21 árs gamall og er uppalinn Stjörnumaður. Hann sótt mikið í sig veðrið síðustu árum og er talinn einn efnilegasti línumaður landsins auk þess að vera árvökull varnarmaður.
„Jón Ásgeir er frábær liðsmaður sem gefur alltaf allt sem hann á í leiki og æfingar, virkilega ánægður að fá að vinna áfram með honum,“ er haft eftir Hrannari Guðmundssyni, þjálfara Stjörnunnar, í tilkynningu sem handknattleiksdeild Stjörnunnar sendi frá sér.
Stjarnan er í 7. sæti Olísdeildar þegar 17. umferðir af 22 eru að baki. Næsti leikur verður við FH í Kaplakrika á laugardaginn.
Staðan og næstu leikir í Olísdeildum.
- Auglýsing -